Til baka

ÁST Á RAUÐU LJÓSI

ÁST Á RAUÐU LJÓSI

Glugga sýning „Ást á rauðu ljósi“ og segir sögu af af pari sem skreppur í lautartúr sér til upplyftingar.

GLUGGINN í Hafnarstræti 88 verður í ástarham á Akureyrarvöku. Vegfarendum gefst kostur á að líta inn um gluggann og upplifa svolítið ástarævintýri þar sem rómantík, galsi og daður ráða ríkjum. Sýningin ber heitið „Ást á rauðu ljósi“ og segir sögu af af pari sem skreppur í lautartúr sér til upplyftingar. Rauði liturinn er áberandi og vísar í blóðheitar tilfinningar og ástina sjálfa. Ástina og kærleikann sem við erum svo lánsöm að vera minnt á í hvert sinn sem við stoppum á rauðu ljósi innan Akureyrarbæjar. Sýningin er hugverk systranna Brynju Harðardóttur Tveiten myndlistarkonu og Áslaugar Harðardóttur Tveiten sem rekur skrautmunasöluna Fröken Blómfríður. Sýningin er fyrir alla aldurshópa og er aðgengileg allan sólarhringinn þar sem hennar er notið utan frá séð.

 

Opnun sýningarinnar er á föstudaginn 30. ágúst kl. 17-19. 

Hvenær
30. ágúst - 15. september
Klukkan
17:00-19:00
Hvar
Hafnarstræti 88, Akureyri
Verð
Ókeypis