Komdu í Sundlaug Akureyrar þar sem Þórunn Kristín Sigurðardóttir Aqua Zumba kennari kemur hjartanu í gang með bros á vör í tilefni Akureyrarvöku.
Aqua Zumba er frábær hreyfing í vatni. Hugmyndin af Aqua Zumba er að það er búið að yfirfæra spor úr Zumba yfir í vatn. Þetta eru svipaðar hreyfingar eins og í hefðbundinni vatnsleikfimi en búið er að setja þær saman á annan hátt í rútínu. Þetta er dans í vatni.
*Viðburðurinn verður ekki haldinn ef veður verður slæmt.
Viðburðurinn er hluti af Akureyrarvöku.