Til baka

Alone Together: Þjónustuborðið opið / Help and Support Desk

Alone Together: Þjónustuborðið opið / Help and Support Desk

A! Gjörningahátíð
Dustin Harvey
Alone Together: Þjónustuborðið opið / Help and Support Desk
 
Í nútímasamfélagi er einmanaleiki orðinn útbreidd plága. Gæti hin sí-raunverulegri gervigreind boðið okkur upp á lausnir? Gagnvirkt smáforrit kynnir okkur fyrir Kya, sem er starfskraftur hjá hinu skáldaða Alone Together – umboði sem leigir út staðgengla fjölskyldumeðlima til fólks sem er einmana.
Setjið ykkur í spor Kya í heimsóknum hennar og sestu hjá Söru, sem hefur ekki hitt dóttur sína lengi. Þitt hlutverk er að leika dótturina eins vel og þér er fært í raunverulegu samtali og gleðja Söru. Þú munt sigla um forvitnilega veröld Fjölskylduleigumiðlunarinnar í gegnum fjóra gagnvirka þætti. Þegar sögunni lýkur er þátttakendum boðið í „starfsmannapartý“.
 
Þessi sýndarveruleikareynsla fer mun lengra en hugmyndin um að tala við vélmenni, því tæknin bregst við hreyfingum þínum og tali. Hönnuðirnir hafa reynt að gera þetta eins raunverulegt og hægt er, sem þýðir að þú getur talað við ófullkomna holdgervinga og náð raunverulegri sýndartengingu.
Hvenær
fimmtudagur, október 5
Klukkan
20:45-22:45
Hvar
Mjólkurbúðin, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir