Þuríður Helga Kristjánsdótttir, jóga- og núvitundarkennari, býður börnum og fjölskyldum þeirra að stíga út úr amstri dagsins, upplifa Listasafnið á nýjan og meðvitaðri hátt og njóta samveru í skapandi og rólegu umhverfi.
Þátttakendur fá jafnframt tíma til að skoða safnið í rólegheitum, taka inn umhverfið, fylgjast með eigin tilfinningum og viðbrögðum og tengjast því sem fyrir augu ber í gegnum leidda íhugun og núvitund. Núvitund er dýrmæt færni sem börn og fullorðnir geta nýtt sér. Hún styður okkur í að tengjast umhverfi af forvitni og athygli – og njóta augnabliksins.
Ekkert þátttökugjald en skráning nauðsynleg á netfangið: heida@listak.is.
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.