Hríseyjarhátíðin fer fram í júlí ár hvert. Boðið er upp á fjölskylduvæna dagskrá sem felst m.a. í óvissuferðum um eyjuna, fjöruferð, kvöldvöku, varðeld og söng. Þetta ár verður Hríseyjarhátíðin eingöngu laugardaginn (10.júlí), en óvissuferð fyrir lengra komna (18+) er á föstudeginum (9.júlí) kl.22:00 á hátíðarsvæðinu.
Hríseyjarhátíðin 2021 verður haldin 10. júlí.
Í Hrísey er öll almenn þjónusta til staðar s.s verslun, veitingahús, sundlaug, tjaldsvæði og gisting. Til Hríseyjar gengur ferjan Sævar og er boðið upp á allt að níu ferðir á dag. Siglingin tekur aðeins 15 mínútur frá Árskógssandi, sem er um 35 kílómetra frá Akureyri. Nánari upplýsingar um Hrísey, ferjuáætlun og þjónustu má nálgast á og á www.hrisey.net.
Opnunartímar
Hríseyjarbúðin
Fös: 11.30 - 22.00
Lau: 10.00-24.00
Sun: 12.00 - 16.00
Sundlaugin
Fös: 10.30 - 19.00
Lau: 10.30 - 17.00
Sun: 10.30 - 17.00
Verbúðin 66
Fös: Frá kl. 12, eldhúsið opið til 20.30
Lau: Frá kl. 12, eldhúsið opið til 20.30
Sun: Frá kl. 12-22, eldhúsið opið til 20.30
Hríseyjarferjan Sævar
Frá Hrísey: 9.00 - 11.00 - 13.00 - 15.00 - 17.00 - 19.00 - 21.00 - 23.00 - Aukaferð laugardag á miðnætti frá Hrísey
Frá Árskógssandi: 9.30 - 11.30 - 13.30 - 15.30 - 17.30 - 19.30 - 21.30 - 23.30
Fyrsta hátíðin var haldin árið 1997 og hefur hún verið árlegur viðburður síðan. Það er Ferðamálafélag Hríseyjar sem stendur að hátíðinni.
Sjáumst hress í Hrísey!
Fyrir frekari upplýsingar um Hrísey þá er hægt að leita á www.hrisey.is