Til baka

10 x SEX og alt í plasti

10 x SEX og alt í plasti

Sammálun-þáttökugjörningur í tilefni Sextugur myndverkamaður

Í tilefni af afmælis sýningu myndlistarmannsins Aðalsteins Þórssonar, Sextugur myndverkamaður, í Deiglunni verður á föstudagskvöldið 18. október framkvæmdur þáttökugjörningurinn 10 x SEX og alt í plasti.

Það verður málað 40 m2 málverk (sennilega það stærsta á Akureyri og þótt víðar væri leitað) með frjálsri þáttöku gesta. Nú þegar hefur harðsnúið lið listamanna boðað þáttöku sína á viðburðinn. Málað verður eftir forskrift svokallaðrar sammálunar sem var praktíseruð á Tilraunakvöldum í listum, sem Myndlistarfélagið og Gilfélagið stóðu fyrir á árunum 2020 - 2022 og þóttu einkar vel heppnuð.

Húsið opnar kl. 17 og er opið öllum.

Hvenær
föstudagur, október 18
Klukkan
17:00-20:00
Hvar
Deiglan Gilfélagið, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Ókeypis.