Höfum opnað sýningu um sögu berklanna. Það er áhrifaríkt að heyra um missi, sorg og örvæntingu þeirra sem glímdu við sjúkdóminn en ekki síður um bjartsýni, æðruleysi og lífsþorsta þeirra. Eftir sýninguna er upplagt að tylla sér niður á vinalega kaffihúsið okkar og bragða á heimabökuðu kruðeríinu og fá sér gott kaffi.
Velkomin á Hvíta dauða sýningu um sögu berklanna.
Ilmandi uppáhellt kaffi og himneskar kökur og kruðerí í umhverfi sem á engan sinn líka.
Sumaropnun:
Maí - helgar: 14-17
Júní/júlí/ágúst: 13-17
Vetraropnun:
Helgar: 14-17
Tökum á móti hópum eftir samkomulagi