Kaupvangsstræti 8-12
600 Akureyri
Sími: 461 2610
Netfang: listak@listak.is
Heimasíða: listak.is
Facebook
Listasafnið á Akureyri leggur áherslu á að virkja sem flesta til þátttöku, að fræða almenning um sjónlistir og efla umræðu um samfélagið, menningu og listir þar sem safnkennsla og fyrirlestrahald skipar stóran sess. Þá er einnig lögð áhersla á samstarf við erlenda aðila, ekki hvað síst á Norðurlöndum. Safnið leitast við að setja upp árlega nokkrar metnaðarfullar sýningar til að efla menningarlíf bæjarins, auka við þekkingu, áhuga og efla skilning á sjónlistum.
Listasafnið á Akureyri er yngsta listasafnið á landinu. Hugmyndin að stofnun þess kom upphaflega frá Jónasi Jónssyni frá Hriflu í blaðagrein sem hann skrifaði árið 1960. Þrír áratugir liðu uns hugmyndin um Listasafnið á Akureyri komst aftur í umræðuna og varð hún loksins að veruleika á afmælisdegi bæjarins þann 29. ágúst 1993. Listasafnið á Akureyri er til húsa þar sem áður var Mjólkursamlag KEA, en byggingin er undir sterkum áhrifum frá Bauhaus-skólanum og hinni alþjóðlegu funkis-hreyfingu. Listasafnið á Akureyri er miðpunktur og sameiningartákn þessarar Listamiðstöðvar í Grófargili.
Safnið var opnað að nýju eftir gagngerar endurbætur og stækkun árið 2018. Sýningarsölum var fjölgað og aðgengi bætt til muna. Húsnæði safnsins er hið glæsilegasta og aðstaðan eins og best verður á kosið.
Opnunartímar:
Daglega kl. 12-17.
Lokað: 24., 25., 31. desember og 1. janúar.
Aðgangseyrir og árskort HÉR
Ókeypis fyrir 18 ára og yngri, 67 ára og eldri, öryrkja, hreyfihamlaða með fylgdarmanni. Ókeypis fyrir nemendur, félagsmenn í ICOM, Físos, SÍM, Gilfélaginu, Myndlistarfélaginu og skólanema gegn framvísun skírteinis.