Hafnarstræti 96
IS-600 Akureyri
Sími: 461 4600
Netfang: blaakannan@internet.is
Facebook: @blaakannan
Bláa Kannan kaffihús er staðsett í hjarta bæjarins í húsinu París sem Sigvaldi Þorsteinsson stórkaupmaður byggði árið 1913. Húsið var byggt sem verslunarhús og opnaði Sigvaldi þar verslunina París.
Bláa kannan opnar á morgnana með nýbökuðu brauði, samlokum, tertum og allskonar kruðeríi. Boðið er upp á súpu allan daginn, grænmetisbökur o.fl ásamt fersku Rubin kaffi. Á Bláu könnunni er borið fram ekta heitt súkkulaði með rjóma, Swiss Mocca, Cappuccino og Latte svo eitthvað sé nefnt. Á kvöldin er róleg kaffihúsastemning. Bláa Kannan var til margra ára eitt af fáum reyklausu kaffihúsum landsins og því brautryðjandi í þeim málum.
Opnunartíma og frekari upplýsingar má sjá HÉR