Til baka

Gokart

Gokart
Hlíðarfjallsvegur 11-15
600 Akureyri
Netfang: gokartaey@gmail.com
FB: gokartak

Gokart er staðsett við svæði Bílaklúbbsins fyrir ofan bæinn. Brautin er 560 metra löng, krefjandi og hröð og geta bílarnir náð allt að 70 kmh þegar ökumaður nær "hinum fullkomna hring." Brautin er með "lifandi tímatöku". Ökumenn fá keppnisgalla, hjálm og öryggisfræðslu hjá reyndum akstursíþrótta mönnum/konum áður en akstur hefst.

Tekið er á móti einstaklingum og minni hópum allt að u.þ.b. 20 manns og fer leigan eftir tímalengd (sjá verð). Einnig er hægt að taka á móti stærri hópum allt að 70 manns og er þá settur upp riðlaskiptur kappakstur með F1 starti og verðlaunaafhendingu, fyrirkomulag sem er mjög vinsælt hjá skólum, vinahópum og vinnustöðum. Á staðnum er grill, sólpallur og salur. Salurinn er innifalinn, tekur 50 manns í sæti en er án borðbúnaðar.

Verð 2024:
10 mín 6.000 kr á mann
20 mín 9.000 kr á mann
2x15 mín 13.000 kr á mann

Tímabókanir eru á noona appinu, auk þess sem hægt er að senda tölvupóst eða hringja.

Afgreiðslutími:
Virkadaga: 14.00-22.00
Helgar: 12.00-22.00

 Opið frá maí til september. Aldurstakmark 12 ára.