Hótel Kea
Hafnarstræti 87-89
IS-600 Akureyri
Sími: 460 2000
Netfang: kea@keahotels.is
Vefsíða: www.keahotels.is
Hótel Kea er eitt af þekktustu kennileitum Akureyrar og er vel staðsett í hjarta bæjarins þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, söfn, sund og veitingastaði.
Hótelið býður uppá 104 smekklega innréttuð herbergi í klassískum stíl sem endurspeglar sögu hótelsins. Boðið er upp á Standard, Superior og Deluxe herbergi ásamt svítu á efstu hæð með útsýni yfir miðbæ Akureyrar og Eyjafjörð.
Endilega stoppið við á veitingastaðnum okkar Múlaberg bistro & bar og njótið íslensks úrvals hráefnis í afslöppuðu umhverfi.
Morgunverður
Morgunverður er borin fram á milli klukkan 07:00 - 10:00 alla daga og er innifalinn í verði.
Múlaberg bistro og bar
Veitingastaðurinn Múlaberg bistro & bar er á jarðhæð Hótel Kea og er opinn:
Mánudaga - fimmtudaga 11:00 - 23:00 (eldhúsið lokar kl.22:00)
Föstudaga - Sunnudaga 11:00 - 01:00 (eldhúsið lokar kl.22:00)
Gleðistund (Happy hour) er alla daga á milli kl.16:00 - 18:00.
Internet
Gestir hafa aðgang að gjaldfrjálsri internettengingu í öllum rýmum hótelsins.
Bílastæði
Gestir Hótel Kea geta keyrt upp að hótelinu og afermt bílinn, í framhaldinu geta þeir lagt bílnum í gjaldfrjálst bílastæði skammt frá hótelinu.
Fundaraðstaða og veislusalir
Hótel Kea býður upp á þrjá sali sem henta vel fyrir alls kyns viðburði, svo sem árshátíðir, ráðstefnur, móttökur og brúðkaup. Salirnir eru allir vel tæknivæddir, búnir nýjustu tækjum og búnaði og henta því einnig vel fyrir fundi og kynningar.
Þjónusta
Almennar upplýsingar
Netfang: kea@keahotels.is
Vefsíða: www.keahotels.is