Lífið er kynlíf: Áslaug Kristjánsdóttir hjúkrunar- og kynfræðingur
Áslaug fjallar um áskoranir sem pör takast á við í langtímasamböndum og lausnir
Áslaug fjallar um áskoranir sem pör takast á við í langtímasamböndum og þær lausnir sem hjálpað hafa þeim sem hafa greinst með krabbamein. Áslaug mun einnig segja frá tilurð ný útkominnar bókar hennar Lífið er kynlíf - Handbók kynfræðings um langtímasambönd og kynna aðferðir sem gera kynlífið ekki bara bærilegt, heldur frábært. Þetta er erindi fyrir öll sem vilja vera í skemmtilegu og nánu ástarsambandi.
Um Áslaugu: Áslaug Kristjánsdóttir er hjúkrunar- og kynfræðingur. Hún starfaði til margra ára á Landspítalanum en síðustu ár á einkastofu. Áslaug hefur í rúman áratug unnið við sambands- og kynlífsráðgjöf með einstaklingum og pörum í fjölbreyttum samböndum. Hún hefur verið með fræðslu og ráðgjöf fyrir krabbameinsgreinda fyrir Krabbameinsfélagið og Ljósið í fjölda ára.
Kaffi og léttar veitingar í boði
Viðburðinn er styrktur af Velunnarasjóð Krabbameinsfélagsins og Heilbrigðisráðuneytinu.